Múslingar eða Múslimar????????

Hejsan alle sammen, já hvað skal segja í fréttum í dag,,

11 sept var í gær,, en það fór víst ekki framhjá neinum sem fylgist með fréttunum. Það er eins og það sé ókey að bomba allan heiminn nema USA, þá þarf allur heimurinn að gráta með,, endalaust,,  Já, múslimar eru búnnir að skapa sér ákveðna ímynd í huga flestra manna og við erum bara að verða skíthrædd við þessa trú,, heilagt stríð hér og heilagt stríð þar,, hvað er fokkings pointið hjá þeim???   hvað hagnast þeir eiginlega á þessu?? það endar bara með því að þeir verða allir drepnir og ekki er það nú lausn…  æi, ég mun aldrei skilja þetta,, best að vera bara í hlutlausa gírnum.

Ég er mikið að spá í að skella mér í snyrti akademíuna og læra að gera neglur, fór og talaði við einn kennarann í gær og hún bauð mér að kíkja um kvöldið.. svo kvaddi ég hana og ætlaði að æða út í bíl með breitt bros á smettinu,, nei,,, hvað haldið þið að hafi skeð,,,,, ég læstist inni og þjófavörnin fór á,, ég skeit á mig úr skömm,,, ég þurfti að hangsa þarna inni í nokkrar mínútur og hamra á hurðinni með þetta væl í eyrunum á mér þangað til að kennarinn sem ég hafði spjallað við varð loks vör við bankið hjá mér,,, ég þoli nú ekki mikið og þetta varð til þess að ég datt algjörlega úr stuði allan daginn og það lá við að ég hætti við að fara í skólann um kvöldið, en eins og þeir segja,, aftur uppá hestinn.. þannig að ég fór og tók hana Söru sætu með mér og okkur líst bara vel á þetta,, en þetta verður mellt betur á næstu dögum hvort að mar eigi að skrá sig eður ei.

Já, annars ekki mikið að frétta héðann úr rokinu nema að það er ennþá alveg stórkostlega biluð blíða útí Danmörku og ég er enn að spá í hvað ég sé eiginlega að gera á þessu hrauni…

Homblest………. Gott báðum megin

3kg farin 12 to go

Já, þetta er þolimæðis verk að losa sig við kílóin, og ég sem er svo mikill súkkulaði GRÍS að það hálfa væri hellingur. Ætli að ég verði ekki að gefa súkkulaðinu uppá bátinn,, andskotinn… 😦

En þetta er allt að koma get ég sagt ykkur,, ég nefnilega splæsti á mig þessu ægilegu flottu íþróttarskó sem ég ætla að slíta  í ræktinni. Já svo var hann Vilhjálmur kallinn hennar Bínu frænku svo frábær að gefa mér 6tíma í Hreyfingu,, hann fékk einhverja prufu tíma sem ég fæ að nota,, allt til að koma mér í réttu áttina.

Ég verð orðin bikiní módel áður en ég veit 😉

Ég skora á sjálfa mig,, ég ætla að vera búin að missa þessi kg fyrir 1Dec

Bujaka Bujaka

Þyngd!

Einu sinni var ég 70-72 kg og mér fannst það aldeilis of þungt, dreymdi um að vera 62kg eða jafnvel 57kg eins og ég var fyrir ekki svo mörgum árum. Svo varð ég ófrísk og búmmmm 30kg ofaní. Ég var ábyggilega 102kg þegar ég átti hana. Í dag, rúmlega mánuði seinna er ég 87kg og mig dreymir um mín gömlu 70kg 😦  Langaði bara að deila þessu með ykkur.

Nýtt lúkk

í stíl við sumarið hérna í RKV,, allt grátt og leiðinlegt,,, en mér finnst nú síðan alveg ágæt. Já ég get nú endalaust tuðað yfir þessu sumri hérna,, það er bara í eðli mínu að tuða, en sjálf finnst mér ömó að hlusta á aðra tuða!! hmm það er nú ekkert sanngjarnt kannski…

Jæja, tölum um gúggöl.com   það var einhver Ítali/Íri búinn að gúggla mig,, fann bloggið mitt, fann e-mailinn og sendi mér póst,, speeeeeeeeeeess. Hann er 27ára og bara eitur hress,, að mér skilst á e-mailinum,,, ég hef ekki enn svarað,, ég er svo mikil gúnga,, en hey það er sko enginn pedófíll sem kemst í brækurnar á mér útaf einjverri svona vitleysu,, svo held ég líka að ég sé of gömul fyrir þá,, helv perrar………

Fékk skemmtilega heimsókn í gær,, frá henni Elísubet sem ég var að vinna með á norrænu,, við vorum saman í herb,, og samdi bara vel, ég hékk mikið í vinnuni hjá henni,, enda var það ekkert slæmt.. það var alltaf til matur í kringum hana, enda vann hún sem kokkur á næturvaktinni.. matur og friður hehehe, ójá,, við töluðum um gömlu góðu dagana, og fólkið, þótt að maður hafi nú oft verið að mygla úr leiðindum þarna,, þá var þetta samt e-ð svo skemmtilegt.. og tala nú ekki um fólkið sem mar kynntist hehe,, við vorum eins og systkyni, allir svo góðir við hvorn annan,, það kom að meira að segja hitabylgja umborð á gömlu ferjuna takk fyrir,, men einmitt eftir að sitja inní herb með henni Elísubetu og alveg að KAFNA úr hita,, ég held að hún eða Sammi ( minnið e-ð að blekkja mig) sat með ískalt og blautt handklæði á hausnum,, svo var sá sem átti ískáp í klefanum mjög góður vinur,, því þá gat maður fengið kallt kók,, eða bjór hehehe

Nú er Gay pride’ið að  byrja með pomp og pragti,, tilhamingju með það hommar og lessur,, ég ætla niður í bæ að sýna lit,, og stuðning auðvitað.. og Jóhanna, ég er ekki á leiðinni austur,, því miður 😦 ég skammast mín hrikalega fyrir að hafa dregið þig svona áfram á asnaeyrunum,,,,,,,

takk fyrir mig.

90210.jpg Dylan og Brandon

LÍNEY’S OUT