Ja hérna fólks,, það er bara ekkert að gerast, ég er hrædd um að það hafa orðið mistök og að ég sé ekki ófrísk heldur bara með alvarlegt case af vindverk sem hefur safnast saman í þörmunum mínum,, líkt og afríku bumburnar, í Afríku sko. Já ekki langar mig að taka á móti því hcvass viðri sem mun blása hausnum af ljósunni af þegar þessi bóla springur,, ég verð kærð fyrir manndráp. Mín bíða ekki 18ár sem rassskeina og peningarvél, mín bíða 18ár á littla Hrauni. Prófið sem ég tók í dag hefur sannað sig, ég kemst aldrei til Himna, en ég ætla ekki að væla yfir því. Ræddi þetta mál við hann Bívar vin minn í dag og ég komst að þeirri niðurstöðu að ef að Himinn og Hell vilja mig ekki, þá mun ég bara vafra um jörðina, ferðast, hræða krakka og bara gera það sem maður gerir best, liggja í leti hehe. Sem sál þarf ég ekki að vinna né éta eða neitt,, ætli að ég geti farið í megrun ef ég dey úr offitu?? spurning,,
Úff,, ég hef barasta ekkert að segja,, hvað get ég sagt,, Landsbankinn er súr,, þessi risastóra kaka sem lokkaði mig niður í bæ í Landsbanka afmæli var búin þegar við skvísurnar mættum á staðin, ég hefði getað sparkað í e-ð en ég lét mér nægja að hrinda litlu barni með landsbankablöðru,,, en ég tek það fram að það var alveg óvart, þetta var svona harmóniku árekstur,, loftbelgurinn minn rakst í blöðruna hennar sem rakst í hana og hún datt… ég er al saklaus, en hvaða máli skiftir það svosum,, ég er ekkert á leiðinni til himna seinast þegar ég vissi..
Það er Woody Allen mynd í gangi,, það er svo sárt að sjá það og heyra að ég gæti rifið úr mér augun og stungið þeim inní eyrun til að losna við þennan vibba, er ekki í lagi með RÚV???? af öllum myndum í heiminum þá datt þeim í hug að sýna öll hanns verk,, it’s killing me softly………
En ég bið að heilsa öllum sem að kíkja nú til mín á þessa síðu,, ég ætla að halda áfram að drukna hérna í rigningunni í RKV og vera abbó útí alla sem eru annaðhvort staðsettir fyrir austan eða í Dk,, eða bara þar sem sumarið er..
until next…… SEEEE YAAAAA