WHAT A COMEBACK!!!!!! WTF

•September 10, 2007 • 2 Comments

Æi hvað ég finn e-ð til með henni…

Það verður erftitt að komast aftur á celebb tindinn eftir þetta æðisfengna FLUNK hjá þessari elsku…..

 Ég stend samt með popp prinsessunni minni

GO BRITNEY 

Ég er á lífi

•July 20, 2007 • 1 Comment

Síðan ég varð fim á myspace hef ég ekki haft mikin tíma til að blogga…   alltof upptekin þú skilör..

En nú er ég komin aftur á kreik og ætla að reyna að blogga allavegna 1-sinni í mánuði heheh

Það er svosum margt sem hefur gerst síðan seinast en samt finnst mér eins og að það sé ekkert að frétta. Týpískt alveg

jæja er komin með krampa í fingurna eftir þessa lÖÖÖÖÖngu færslu.   heyrumst

Smá öppdeit

•November 11, 2006 • 9 Comments

Jæja, ég er að spá í að taka mér smá pásu frá þessu blogg dæmi, ég veit ekkert um hvað ég á að skrifa… Þannig að ég ætla að að setja inn smá öppdeit hérna áður en ég kveð að sinni..

Ég er byrjuð að vinna í útilíf í smáranum, fíla það vel.

Ég er ekki búin að skíra enn,, er að spá í að gera það annaðhvort í des eða jan.

Ég keypti mér úlpu um daginn,, hún er svaka hlý og góð.

Það byrjaði að snjóa daginn eftir að ég keypti úlpuna,, heppin ég…

Við fengum gott í matinn í kvöld, hamborgara hrygg.

Ég er búin að kynnast sætum gæja,, en ef ég þekki mig rétt, þá er hann ekkert spes eftir viku. Þá verð ég komin með ógeð.

Loksinns þegar maður flytur til Íslands, þá dettur vinum mínum í hug að fara til Danmerkur.. þið vitið hver þið eruð.

Ég er ekki búin að sjá Borat enn,, stefni á að gera það á morgun með baununum mínum þrem.

Jólin eru byrjuð í IKEA,,, en þau eru líka að byrja í smáranum og kringlunni,,, veit ekki með Laugarv,,,

Æi .

Bless í bili….

P.S   það er ekki TABU að kvitta á þessa síðu….

Eitt lítið fallegt ljóð fyrir þig

•October 25, 2006 • 4 Comments

Þagna sumars lögin ljúfu

litum skiftir jörðin fríð.

Það sem var á vori fegurst

visnar oft í fyrstu hríð.

Minning um þann mæta gróður

mun þó vara alla tíð

 

Viltu mínar þakkir þiggja

þakkir fyrir liðin ár.

Ástríkið og umhyggjuna

er þú vina þerrðir tár.

Autt er sætið, sólin horfin

Sjónir blinda hryggðar-tár.

 

Elsku mamma, sorgin sára

sviftir okkur gleði og ró.

Hvar var meiri hjartahlýja

hönd er græddi, og hvílu bjó

þreyttu barni , og bjó um sárin

bar á smyrsl, svo verk úr dró.

 

Muna skulum alla ævi

ástargjafir bernsku frá.

Þakka Guði gæfudaga

glaða, er móður dvöldum hjá.

Ein er huggun okkur gefin

aftur mætumst himnum á.

 

 

höf óþekktur

BULLLLLLLLLLLLLLLLLLL SJITTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTT

•October 14, 2006 • 4 Comments

Jæja,, er ekki kominn tími á smá up-date hjá mér… látum okkur sjá.. hvað er búið að gerast síðan seinast,, hmmm

Ég fór í nýju IKEA um daginn,, hún er rosa flott,, ábyggilega mjög gaman að versla þar ef maður á monníana til þess…

Fór á kaffihús með Jónu,, svo fórum við á Friday’s þar sem að gosið var frítt og boðið var uppá ostarúllur,, mjög gott að fá smá sárabætur eftir alla þessu lélegu afgreiðslu þarna í gegnum mánuðina. Og þá er ég að tala um að maður er settur í klukkutíma bið í andyrinu,, þegar maður vill panta , á meðan maður bíður á eftir matnum og þegar maður vill borga.. auk þess þar sem að blá plöst dúkka allt í einu upp í hamborgaranum og kaffi lattinn er meira eins og ískaffi… mjög spes..

Fór á djammið í gær með henni Ernu vinkonu minni og sistir hennar, ég var reyndar edrú og var komin heim kl 2.. en þetta ver fyrsta sinn sem ég fór út síðan gamlárskvöld 2006… Það er allt morandi í túristum niðrí bæ.. það settist einmitt einn hjá mér og byrjaði að spjalla.. hann var frá USA.. og hann var hundleiðinlegur,, vildi bara vera í einhverjum ágiskunarleik þar sem ég þurfti að giska á hitt og þetta,, og ef ég giskaði vitlaust þá átti ég að kissa’ann.. NEI TAKK segi ég nú bara..

Svo er dagurinn í dag bara búinn að vera easy.. rok og rigning úti.. þá er best að liggja undir sæng og hafa það gott,, dorma svona annaðslagið…

Jæja,, hef ekki meir að segja að sinni … nema að súludans er inn í vetur

NJÓTIÐ og elskið friðinn david-hasselhoff.gif

BLÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖGG

•October 9, 2006 • 4 Comments

yo-ho.gif Já þetta var þessi helgi,, grillveisla, afmæli og svo heimsókn í fjörðinn fagra (Hafnafjörð ekki Eskifjörð sem er fallegasti fjörður EVER!!) Já alveg nóg að gera finnst mér.. Talði við bróður minn í dk áðan,, hann bað að heilsa ykkur,, Ég er að horfa á Discovery channel… medical examiner, mjög spennandi.. þessi þáttur fjallar um hjón sem fóru á kalkúnarveiðar,, svo í miðju fjörinu þá missir kallinn riffilinn og skotið hljóp af og fór beint í mallan á kellunni,, hún dó,, frekar sorglegt, og greyið kallinn að lifa með þessu .. en óhöppin gera ekki vart við sig fyrr en um seint, svona er nú það.

Ég er bókstaflega búin að hanga á netinu og leyta af allskonar glys myndum… búin að finna alveg fullt en nú vantar mig síðu til að setja þær inná..

hef ekkert meir að segja nema bara potatoes.gif                    oki þessi á að segja   PO TA TOES

og munið síðan að rock-on.gif

Viðtal við Guð

•October 6, 2006 • 3 Comments

Viðtal við Guð angelreverence_face6_t.jpg

Mig dreymdi að ég hafði haft viðtal við Guð.

 

“Svo þig langar að eiga viðtal við mig?? spurði Guð.

 

“Ef þú hefur tíma! Svaraði ég.

 

Guð brosti “Tíminn minn er eilífur. Hvaða spurningu hefurðu í huga fyrir mig?

Ég spyr..”Hvað kemur þér mest á óvart með mannkynið?

 

 

Guð svaraði…

“Að þeim leiðist barndómurinn Þau flýta sér að verða fullorðin, svo langar þeim að verða börn aftur..

 

” Að þau tapa heilsunni fyrir pening, svo eyða þau formúu í að fá heilsuna aftur..

 

“Að þau hugsa stöðugt um framtíðina að þau gleyma nútímanum, þannig að þau fá hvorki lifaði í nútímanum né framtíðinni..

 

“Að þau lifa eins og þau séu ódauðleg og deyja eins og þau hafa ekki átt líf..

 

Guð tók í höndina á mér og við þögðum um stund..

 

Síðan spurði ég… “Sem foreldri, hverjar eru lífsreglurnar sem þú vilt að börnin þín læri??

Guð svaraði…

“Að þau læri það að það er ekki hægt að þvingva neinn til að elska sig.. Aðeins leyft sér að vera elskuð..

 

 

“Að læra það að það er ekki rétt að líkja sig við aðra..

 

“Að læra að fyrigefa, með að stunda fyrigefningu..

 

“Að læra það að það tekur aðeins augnablik að rífa upp gróin sár hjá þeim sem þau elska,, og að það getur tekið lífstíð að græða þau aftur..

 

“Að læra það að auðugir eiga ekki allt, heldur skortir minnst..

 

“Að læra það að það er fólk sem elskar þau innilega, en hafa ekki lært að tjá eða að sýna þeim tilfinningarnar..

 

“Að læra það að tveir einstaklingar geta túlkað sama hlutinn á mismunandi hátt..

 

“Að læra það að það er ekki nóg að fyrigefa hvort öðru, það þarf að fyrigefa sjálfum sér líka..

 

“Þakka þér fyrir að gefa mér af tíma þínum” Sagði ég þakklátur

“Er eitthvað annað sem þú vilt koma börnum þínum til skila?

 

Guð brosti og svaraði, ” Vitið það að ég er hér…….. Alltaf..

 

  • Höf óþekkturangelpatience_face_t.jpg
 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.