Nr 5000 gaf sig ekki fram,,, segir allt sem segja þarf

•October 3, 2006 • 3 Comments

Halló allir saman.. já, ég var bara aktíf þessa helgina,, Bjössi bauð mér með á ball með Magna og Dilönu,, ég verð að segja að ég er alveg að fíla kelluna,, hún syngur þrusuvel. Ég verð að segja að við Björn vorum eins og klippt út úr vanity fair,, svo smart voru við til fara… Svo skelltum við okkur á ostasýninguna í smáranum,, ohhh hvað ég var södd þegar ég kom heim hehe.. ég er algjör osta aðdáandi.. keypti mér líka buxur og óróa handa rúsínu bollunni minni…. já. svo fór ég í bíó með bróðir mínum á sunnud kveldið,, við skelltum okkur á Tallageda nights,, hún var mjög svo fyndinhaha.jpg,, mæli með henni…

Já, svo er maður bara búinn að liggja í leti eftir helgina, why not. Enda er það ekkert leiðinlegt þegar maður er komin með 60 sjónvarpsstöðvar inná heimilið….

Jæja, blæjó í bili

er farin að tjúttaavatar3035_5.gif

Nú fer að styttast í NR 5000!!! WHO WILL BE THE LUCKY ONE?

•September 28, 2006 • 5 Comments

Já,, allt að gerast um þessar mundir,, ég er semsagt byrjuð í ræktinni og hún er bókstaflega að kála mér. Og ég sem hélt að ég væri í toppformi…  Ég tók þátt í einum stott pilates tíma í gær og það var æði,, þetta eru hörku æfingar og ég mæli eindregið með þessum æfingum,,

Annars er e-ð lítið að gerast hjá mér fyrir utan ræktina,, ég er að vísu að fara á tónleikana með Magna og Dilönu á morgun,, Björn vinur minn var svo ljúfur að bjóða mér með og ekki veitir manni nú af að kíkja aðeins út og sjá aðra menn og konur en þá sem ég umgengst.

En jæja,, ég hef e-ð voða lítið að segja í bili þannig að ég hef ákveðið að slútta þessari þvælu.

Þangað til næst……………………………………………..

PEACE OUTalig.jpg

Málfræðin að bögga mig

•September 21, 2006 • 6 Comments

Hæhæ,, long time no see

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvenær ég nota mér og hvenær ég nota mig!

Sá sem gerir það “fær” frí miða á sykurmolana,,,(lygi)

Annars allt gott að frétta af mér, keypti mér skó,,, 10.900 ekki nema… but my feets are priceless. Hhehe þetta hljómar eins og ég hafi eytt morðféi í þessa skó hehe

Fáið ykkur súkkulaði freyju-gott.jpg

Múslingar eða Múslimar????????

•September 12, 2006 • 2 Comments

Hejsan alle sammen, já hvað skal segja í fréttum í dag,,

11 sept var í gær,, en það fór víst ekki framhjá neinum sem fylgist með fréttunum. Það er eins og það sé ókey að bomba allan heiminn nema USA, þá þarf allur heimurinn að gráta með,, endalaust,,  Já, múslimar eru búnnir að skapa sér ákveðna ímynd í huga flestra manna og við erum bara að verða skíthrædd við þessa trú,, heilagt stríð hér og heilagt stríð þar,, hvað er fokkings pointið hjá þeim???   hvað hagnast þeir eiginlega á þessu?? það endar bara með því að þeir verða allir drepnir og ekki er það nú lausn…  æi, ég mun aldrei skilja þetta,, best að vera bara í hlutlausa gírnum.

Ég er mikið að spá í að skella mér í snyrti akademíuna og læra að gera neglur, fór og talaði við einn kennarann í gær og hún bauð mér að kíkja um kvöldið.. svo kvaddi ég hana og ætlaði að æða út í bíl með breitt bros á smettinu,, nei,,, hvað haldið þið að hafi skeð,,,,, ég læstist inni og þjófavörnin fór á,, ég skeit á mig úr skömm,,, ég þurfti að hangsa þarna inni í nokkrar mínútur og hamra á hurðinni með þetta væl í eyrunum á mér þangað til að kennarinn sem ég hafði spjallað við varð loks vör við bankið hjá mér,,, ég þoli nú ekki mikið og þetta varð til þess að ég datt algjörlega úr stuði allan daginn og það lá við að ég hætti við að fara í skólann um kvöldið, en eins og þeir segja,, aftur uppá hestinn.. þannig að ég fór og tók hana Söru sætu með mér og okkur líst bara vel á þetta,, en þetta verður mellt betur á næstu dögum hvort að mar eigi að skrá sig eður ei.

Já, annars ekki mikið að frétta héðann úr rokinu nema að það er ennþá alveg stórkostlega biluð blíða útí Danmörku og ég er enn að spá í hvað ég sé eiginlega að gera á þessu hrauni…

Homblest………. Gott báðum megin

3kg farin 12 to go

•September 6, 2006 • 4 Comments

Já, þetta er þolimæðis verk að losa sig við kílóin, og ég sem er svo mikill súkkulaði GRÍS að það hálfa væri hellingur. Ætli að ég verði ekki að gefa súkkulaðinu uppá bátinn,, andskotinn… :(

En þetta er allt að koma get ég sagt ykkur,, ég nefnilega splæsti á mig þessu ægilegu flottu íþróttarskó sem ég ætla að slíta  í ræktinni. Já svo var hann Vilhjálmur kallinn hennar Bínu frænku svo frábær að gefa mér 6tíma í Hreyfingu,, hann fékk einhverja prufu tíma sem ég fæ að nota,, allt til að koma mér í réttu áttina.

Ég verð orðin bikiní módel áður en ég veit ;)

Ég skora á sjálfa mig,, ég ætla að vera búin að missa þessi kg fyrir 1Dec

Bujaka Bujaka

Steve Irwin látinn

•September 4, 2006 • 1 Comment

Mér finnst það hræðilegt, ég mun sakna hanns mikið.

Hann var lengi, lengi Idolið mitt og ég varði ótal mörgum tímum í að horfa á þættina hanns.

Ég get ekki skrifað meir, tárin trufla sjónina og ég er með maskara í augunum.

Steve     rest in peace

Þyngd!

•August 16, 2006 • 7 Comments

Einu sinni var ég 70-72 kg og mér fannst það aldeilis of þungt, dreymdi um að vera 62kg eða jafnvel 57kg eins og ég var fyrir ekki svo mörgum árum. Svo varð ég ófrísk og búmmmm 30kg ofaní. Ég var ábyggilega 102kg þegar ég átti hana. Í dag, rúmlega mánuði seinna er ég 87kg og mig dreymir um mín gömlu 70kg :(   Langaði bara að deila þessu með ykkur.

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.