Eitt lítið fallegt ljóð fyrir þig
Þagna sumars lögin ljúfu
litum skiftir jörðin fríð.
Það sem var á vori fegurst
visnar oft í fyrstu hríð.
Minning um þann mæta gróður
mun þó vara alla tíð
Viltu mínar þakkir þiggja
þakkir fyrir liðin ár.
Ástríkið og umhyggjuna
er þú vina þerrðir tár.
Autt er sætið, sólin horfin
Sjónir blinda hryggðar-tár.
Elsku mamma, sorgin sára
sviftir okkur gleði og ró.
Hvar var meiri hjartahlýja
hönd er græddi, og hvílu bjó
þreyttu barni , og bjó um sárin
bar á smyrsl, svo verk úr dró.
Muna skulum alla ævi
ástargjafir bernsku frá.
Þakka Guði gæfudaga
glaða, er móður dvöldum hjá.
Ein er huggun okkur gefin
aftur mætumst himnum á.
höf óþekktur

æjh.. hvad þetta er e-d ótrulega fallegt.. eg fekk sma svona hroll i endann
en humm.. áttir þu eki ad vera farinn ad sofa mer finnst þú hafa sett þetta frekar seint inn ad minu mati skoh..
fallegt ljóð
kveðja úr snjónum fyrir austan
örugglega mjög fallegt….verð samt að viðurkenna að ég er ekki mikið fyrir svona ljóð þannig ég kláraði ekki að lesa :/
en hlakka til að sjá ykkur svísur fljótlega
kv Jóna ofurfrænka
ég heimta update á bloggið þitt frk. Líney